Sunday, January 19, 2014

Nr. 2 - Mistök

Mistök…
Hvað eru mistök og hvernig bregðumst við við þegar við áttum okkur á að við höfum framkvæmt þau!

Samkvæmt minni skilgreiningu eru mistök, eitthvað sem var sagt eða gert sem skilaði ekki tilætluðum árángri. Hvort sem framkvæmt var meðvitað eður ei.

Mistök eru þó einkar mikilvæg fyrir persónulegan vöxt og þroska. Ef við gerum ekki mistök þá lærum við ekki eða tökum meðvitað betri ákvarðanir í framtíðinni.

Mistök koma í öllum stærðum og gerðum, með mismiklum áhrifum á líf okkar. Allt frá því að hafa engin áhrif yfir í að hafa miklar breytingar í för með sér. Einnig er skilgreining á hugtakinu einkar persónubundin.

Þegar ég lít tilbaka yfir farin veg í mínu eigin lífi, eru ótal mörg mistök sem ég hef framkvæmt. Sum þeirra hafa haft sárar lífsreynslur í för með sér og aðrar fært mér það sem er mér kærast í lífinu og haft ótrúlega jákvæðar breytingar á persónuna sem ég hef að geyma.

Slæmar ákvarðanir varðandi fólk sem ég hef ákveðið að hleypa „inn“ og upplifði síðar svikin af, þau skipti sem ég ákvað að vera en ekki að fara í samböndum sem ég vissi innst inni að voru mér ekki holl. Allt hefur þetta kennt mér eitthvað og hef ég áttað mig á að ef ekki er lagað „grunninn“ sem er við sjálf, þá eru allar líkur á að sömu mistökin verði framkvæmd aftur og aftur bara í öðrum umbúðum.

Þegar við treystum á dómgreind annara hvað eigin líf varðar og setjum sjálfvirði okkar þar með í þeirra hendur, þá munum við líklegast ekki læra af eigin mistökum. Heldur erum við upptekin af því að "þóknast" öðrum og samtímis að hunsa þá staðreynd að ábyrgðin af eigin hamingju liggur í okkar höndum. þar sem engin nema við sjálf getum metið hvað er mikilvægast fyrir okkur sjálf.

Með viðburðarík ár að baki eru margar hugsanir sem staldra við í kollinum á mér, mis jákvæðar en baráttuviljinn fyrir að finna innri ró og elska og virða sjálfa mig meira er gríðalega mikill.

Ég hef valið þennan vettfang til að viðra hugsanir mínar sem og pælingar á lífinu almennt. Ég áskil mér rétt á að skipta um skoðun oft á dag þar sem ég er enn að gera mistök og læra af þeim. Sem betur fer.

"Experience is simply the name we give our mistakes"
Oscar Wilde

Ást M

No comments:

Post a Comment