Tuesday, December 20, 2016

Nr.6 Samskipti


Að tjá sig er kúnst, að skilja aðra er ekki síður kúnst og það er með ólíkindum hversu hraplega er hægt að misskilja hvert annað.

Samskipti eru gríðalega mikilvægur hluti af tilveru okkar. Ekki eingöngu til að tjá sig um þarfir, langanir og líðan heldur einnig til að fróa félagslegri þörf sem við öll höfum og einnig til að veita hvort öðru mikilvægar upplýsingar, fræða hvort annað og þar fram eftir götunum.

Samskiptaform eru mismunandi, sem dæmi geta þau farið fram á eftirfarandi máta:
-Samtal þar sem tónbrigði og líkamstjáning eflir skilning viðtakandans.
-Skeyti, þá annað hvort einhverskonar skilaboð eða tölvupóstur þar sem erfitt er að túlka tilfinningar á bakvið það sem skrifað er og mjög auðvelt er að misskilja efnið.
-Svo er einnig hægt að notast við tákn.

það er mjög mismunandi hvernig samskiptum okkar er háttað, allt eftir hver á í hlut. Við tjáum okkur jú ekki eins við maka/börn eða yfirmann eða hvað þá við ókunnuga. Samskipti er að mínu mati mjög áhugavert fyrirbæri! stundum hittir maður fólk sem klárar fyrir þig setningar og virðist skilja þig betur en þú skilur þig sjálfan. Svo eru þessir sem maður hefur á tilfinningunni að séu geimverur, botnar ekki upp né niður í þeim, hvað þá þeir í þér.

Stundum forðast maður samskipti við ákveðið fólk eða bara fólk yfir höfuð og stundum sækir maður í að fá að tjá sig eða hlusta á aðra. Ætli það sé ekki hægt að segja að hvort maður sækir í eða forðast samskipti við fólk í formi "andlit til andlits" fari alfarið eftir andlegri líðan viðkomandi. Ef ég tala fyrir sjálfa mig þá er ég langt frá því að vera sólgin í samskipti þegar ég er í lægð. þá vil ég bara fá að vera í friði í þögninni, inní hausnum á sjálfri mér. Einnig eru vissar persónur sem mér finnst hreint og beint óþægilegt að eiga í samskiptum við og þvi forðast ég það, hvort sem það er er meðvitað eður ei! Ætli þessi undankoma sé ekki hluti af þvi að ég hef strögglað, og geri enn, með að setja fólki mörk þegar kemur að framkomu í minn garð. Ég hef átt/á það til að leyfa fólki að segja hvað sem er við mig og jafnvel ganga yfir mig, og eftir á verð ég svo reið út í sjálfa mig að hafa ekki svarað og kennt fólki betri framkomu í minn garð.

Ég reyni að leggja mig fram við að vanda samskipti mín við aðra, vera kurteis, brosa, vera jákvæð, hrósa og vera hreinskilin. ÉG get því miður ekki sagt að það takist í hvert sinn en ég reyni að vera meðvituð um hvað ég læt út úr mér eða skrifa til annara sem ég þarf að tjá mig við.


Words - so innocent and powerless as they are, as standing in a dictionary, how potent for good and evil they become in the hands of one who knows how to combine them
-Nathaniel Hawthorne


Ást M

Monday, December 5, 2016

Nr. 5 Traust

Traust .. hvað er það og hvers vegna er það okkur svona mikilvægt?

Það að treysta er okkur mannfólkinu ekki eðlislægt. Tortryggni er frekar eitthvað sem okkur er eðlislægt og hefur í gegnum tíðina verndað okkur fyrir alls kyns miður góðum lífsreynslum en jafnframt líka rænt okkur af góðum.

Sagt er að traust sé áunnið, ætli það megi þá ekki segja að það að treysta sé því lærð hegðun. Að treysta öðrum gerist ekki fyrr en sá einstaklingurinn hefur sýnt það og sannað aftur og aftur að hann sé í raun traustsins verður. Þegar traust er brotið og svik eiga sér stað getur það tekið langan tíma að vinna það inn aftur. Í sumum tilfellum þegar trekk í trekk er brotið traustið er ekki hægt að bæta það. Við ávinnum okkur traust hjá öðrum með orði og hegðun og tekur sú vinna engan enda. Að ávinna sér traust annarra krefst hugrekkis og einhuga ásetningar. Í nútíma samfélagi er traust ekki eitthvað sem fellur af himni ofan. Að svíkja einhvern er auðvelt og í mörgum tilfellum án afleiðinga. Af hverju að hætta að vera óheiðarlegur og nýta sér fólk þegar þú kemst upp með það og afleiðingarnar eru engar. Smá óþægindasuð í magann og svo hverfur það. Hvíta lygin er jú margfalt auðveldari en að vera heiðarlegur og öll ljúgum við.

Traust kemur í mörgum myndum.
- Að staðið sé við samninga/loforð
- Að vera trúr og samkvæmur sjálfum sér í samskiptum
- Að sagt sé sannleikann
- Þagmælska
- Í vinnu er treyst á fagmennsku / þekkingu
- Að vera áreiðanlegur
Svo mætti lengi telja.

Að treysta blindandi og án þess að efa nokkuð af því sem sagt er gefur einstakling stimpilinn að hann sé auðtrúa, sem ekki er talið vera álitlegur kostur heldur einfeldni.

Einu sinni var, að fólk treysti sínum persónulegu málum eingöngu fyrir sínum allra nánasta hring. Í dag virðist þörfin að deila öllu milli himins og jarðar með öllum heiminum vera mikil. Á eina höndina þá er það jákvætt út frá því sjónarhorni að opna þarfa umræðu á erfið viðfangsefni og á hina, það má nú öllu ofgera!

Í gamla daga voru heiðursmanna samkomulög virt og fólk bar virðingu hvort fyrir öðru og var annt um orðspor sitt. Því þú eyðileggur jú orðspor þitt ef þú verður uppvís af því að svíkja eða bregðast trausti annara. Hvort sem það er að svíkja pening úr viðskiptafélaga eða svíkja traust lífsförunauts með t.d framhjáhaldi eða lygum. Í dag virðast þessir hlutir hafa svo lítið vægi, það eru hvort eð er allir að halda framhjá og allir hinir eru líka óheiðarlegir þegar kemur að skattskýrslunni!

Traust veitir okkur öryggi og gefur einstaklingum tækifæri á að slaka á. Þá meina ég að leggja niður varnir, að vera ekki stöðugt að véfenga allt og alla, sem er ótrúlega drenandi ástand að vera í. Traust veitir okkur nánd, tilfinninguna að líða virt og að einhverjum sé annt um okkur, því þegar við treystum þá trúum við því að við verðum ekki niðurlægð, logið að eða svívirt.

Með réttu ættum við að bera mikla virðinu fyrir því að vera treyst og fara vel með það traust. En því miður er það ekki raunin. Persónulega finnst mér of algengt að fólk hafa það viðhorf gagnvart trausti að það vaxi á trjám og eigi mjög erfitt með að líta í eigin barm og sjá/viðurkenna óheiðarlega/svikula hegðun hjá sjálfu sér gagnvart öðru fólki. Það eru allt of margir sem hafa þá skoðun að lífið snúist í kringum rassgatið þeim sjálfum og samferðafólk þeirra sé til að nota til að fá sínu framgengt.

Að vera heiðarlegur í ástarsamböndum er einnig eitthvað sem fólk virðist vera farið að bera litla virðingu fyrir. Nóg er af fiskum í sjónum! Ég finn mér bara nýjan maka og þar með nýjan traust „reikning“ því traustið hjá fyrri maka var komið í þrot. Sama má í raun segja um vinskap.

Mín manneskjusýn fyrir sjálfa mig er að vera traustsins verð, sama hver það er sem á í hlut. Ég vil líða vel með sjálfa mig þegar ég leggst á koddann í lok dags. Að traðka á öðru fólki, vera óheiðarleg vegna þess að mig skortir kjark til að segja sannleikann eða að svíkja mína nánustu eru hlutir sem ég vanda mig við að gera ekki. Þetta krefst vinnu, stanslausra vinnu. Að vera í tengslum við sjálfa mig og að horfa gagnrýnin inn á við getur verið ansi erfitt, því stundum er miður fallegt það sem blasir við mér.

Whoever is careless with the truth in small matters cannot be trusted with important matters
-Albert Einstein

Ást. M

Monday, July 25, 2016

Nr. 4. Geðbólgur.

Ég verð að viðurkenna að undanfarnir mánuðir hafa verið stútfullir af geðbólgum og tognuðu hjarta í mínum heimi. Í þessu ástandi finn ég hversu mikils virði það er að hafa nákomna sem eru til í að hlusta á rausið um sama hlutinn aftur og aftur.
Sem betur fer skoppar maður tilbaka og oftar en ekki lærir eitthvað sem gerir okkur sterkari í næstu lægð.
Undanfarin ár hafa verið fremur stormasöm í mínu lífi og geðheilsan hefur fengið að kenna á því með tilheyrandi geðbólgum og tímabilum þar sem ég hef einfaldlega lamast af vanlíðan. Það versta við að líða svona illa er þegar maður er meðvitaður um hvað þarf til að komast ”on top” aftur. Stattu bara upp og brostu, vertu jákvæð og einbeittu þér að því jákvæða í lífinu. Hljómar einfalt og nokkuð auðvelt ….. en er það alls ekki þegar maður er í ástandinu.
Gríðalegur pirringur og vanmáttartilfinning yfir að geta ekki bara ”snap out of it” og hætt að líða illa einkennir stundum tilvist mína. Ég veit að geðbólgurnar hjaðna, lífið heldur áfram og sem betur fer þegar fjarlægð kemur á storminn þá sé ég hlutina í nýju ljósi og er ekki blinduð af tilfinningum núsins og er betur í stakk búin að mynda mér skoðanir eða taka ákvarðanir tengdar reynslunni.
Öll erum við mismundandi og bregðumst við á okkar eigin hátt við lífsins þrautum . Stundum er ég algjörlega blönk á skilning gagnvart fólki sem virðist enturtaka sama hlutinn aftur og aftur og búast við nýrri niðurstöðu.

Ég trúi því heilshugar að það sé ástæða fyrir öllu sem ég hef lent í og það sé lærdómur sem ég á að taka frá lífsreynslunni.
Er maður veiklundaður ef maður ræður ekki við sveiflunar, ef lagst er upp í rúm og sett sængina yfir haus. Eða er maður veiklundaður ef maður stendur ekki upp aftur. Hvað skilgreinir sterkan einstakling?

Insanity: doing the same thing over and over again and expecting different results.
-Albert Einstein

Ást M

Sunday, January 26, 2014

Nr.3 - Viðhorf

Viðhorf....

Það er alltaf að verða meira meira augljóst fyrir mér hvað viðhorf hefur allt með hamingjustuðul einstaklinga að gera. Viðhorf gagnvart lífinu, okkur sjálfum, lífsreynslum og eiginlega bara öllu sem verður á okkar vegi í gegnum lífið. þegar ég hugsa út í það þá hef ég aldrei hitt neikvæðan og jafnframt lífsglaðan einstakling, ætli þeir finnist?

Mér þykir það nokkuð augljóst að við sjálf veljum okkar eigið viðhorf. Þegar mótlæti lætur á sér kræla þá tökum við, meðvitað eða ómeðvitað, ákvörðun um hvernig við kjósum að takast á við hlutina og hversu lengi við veltum okkur upp úr þeim. Við stjórnum því hvernig við hugsum og í beinu framhaldi hvernig við bregðumst við.

Þegar ég kýs að vera neikvæð og hafa allt á hornum mér, virðist allt ganga á afturfótunum og staðan verður enn ómögulegri. Ég á það til að festast í þessum neikvæðnispitt í smá tíma þar til ég sé ljósið og ákveð að jákvæðni sé meira töff. þegar ég fer að fókusa á það að vera jákvæð og brosa vill svo merkilega til að lífið brosir við mér á móti.

Ég ætla alls ekki að halda því fram að það sé auðvelt að vera alltaf jákvæður. Sér í lagi þegar valið hefur verið neikvæðni í fortíðinni eða við erum alin upp við að neikvæðni sé málið. Við erum öll þrælar vanans og ef við eigum það til að velja neikvæðni fram yfir jákvæðni þá munum við eflaust halda því áfram, þar til meðvitað er tekin ákvörðun um annað.

Að vera meðvitaður um eigin hugsanir er því mjög mikilvægt til að geta breytt eigin viðhorfi. Einhverstaðar las ég að við ættum að passa okkur á því hvað við segjum við okkur sjálf því við erum að hlusta!

Það er til alveg ótrúlega mikið af fólki sem heldur því fram að lífið sé ósanngjarnt og upplifir sjálft sig sem endalaus fórnarlömb og kvartar yfir einu og öllu. Mikið getur verið erfitt að umgangast svoleiðis fólk í lengri tíma. Ég tel að með þetta viðhorf mun svoleiðis fólk líklegast ekki upplifa neitt jákvætt. Allt gott fellur í skuggan af og/eða er kaffært í neikvæðni og svartsýnishugsunum.

Neikvæðni er smitandi og eitthvað sem engin sækir í nema vera neikvæður sjálfur. Jákvætt fólk geislar og hefur dásamlegt aðdráttarafl og veitir okkur jafnvel innblástur í að verða betri í að kjósa bros fram yfir skeifu.

Ég leiði stundum hugann að orðatiltæki sem móðir mín sagði oft við mig í æsku "þú uppskerð það sem þú sáir". Ég hef alltaf skilið þetta sem að ef ég er góð og kem fram við aðra með virðingu og vinsemd þá mun ég uppskera það í sömu mynt. Stór misskilingur! Núna skil ég það þannig að ef ég vel mér jákvætt viðhorf og að brosa framan í heiminn, þá mun heimurinn og lífið færa mér góða hluti.

“We cannot change our past... we cannot change the fact that people will act in a certain way. We cannot change the inevitable. The only thing we can do is play on the one string we have, and that is our attitude. I am convinced that life is 10% what happens to me and 90% of how I react to it. And so it is with you... we are in charge of our Attitudes.”
― Charles R. Swindoll

Ást M


Sunday, January 19, 2014

Nr. 2 - Mistök

Mistök…
Hvað eru mistök og hvernig bregðumst við við þegar við áttum okkur á að við höfum framkvæmt þau!

Samkvæmt minni skilgreiningu eru mistök, eitthvað sem var sagt eða gert sem skilaði ekki tilætluðum árángri. Hvort sem framkvæmt var meðvitað eður ei.

Mistök eru þó einkar mikilvæg fyrir persónulegan vöxt og þroska. Ef við gerum ekki mistök þá lærum við ekki eða tökum meðvitað betri ákvarðanir í framtíðinni.

Mistök koma í öllum stærðum og gerðum, með mismiklum áhrifum á líf okkar. Allt frá því að hafa engin áhrif yfir í að hafa miklar breytingar í för með sér. Einnig er skilgreining á hugtakinu einkar persónubundin.

Þegar ég lít tilbaka yfir farin veg í mínu eigin lífi, eru ótal mörg mistök sem ég hef framkvæmt. Sum þeirra hafa haft sárar lífsreynslur í för með sér og aðrar fært mér það sem er mér kærast í lífinu og haft ótrúlega jákvæðar breytingar á persónuna sem ég hef að geyma.

Slæmar ákvarðanir varðandi fólk sem ég hef ákveðið að hleypa „inn“ og upplifði síðar svikin af, þau skipti sem ég ákvað að vera en ekki að fara í samböndum sem ég vissi innst inni að voru mér ekki holl. Allt hefur þetta kennt mér eitthvað og hef ég áttað mig á að ef ekki er lagað „grunninn“ sem er við sjálf, þá eru allar líkur á að sömu mistökin verði framkvæmd aftur og aftur bara í öðrum umbúðum.

Þegar við treystum á dómgreind annara hvað eigin líf varðar og setjum sjálfvirði okkar þar með í þeirra hendur, þá munum við líklegast ekki læra af eigin mistökum. Heldur erum við upptekin af því að "þóknast" öðrum og samtímis að hunsa þá staðreynd að ábyrgðin af eigin hamingju liggur í okkar höndum. þar sem engin nema við sjálf getum metið hvað er mikilvægast fyrir okkur sjálf.

Með viðburðarík ár að baki eru margar hugsanir sem staldra við í kollinum á mér, mis jákvæðar en baráttuviljinn fyrir að finna innri ró og elska og virða sjálfa mig meira er gríðalega mikill.

Ég hef valið þennan vettfang til að viðra hugsanir mínar sem og pælingar á lífinu almennt. Ég áskil mér rétt á að skipta um skoðun oft á dag þar sem ég er enn að gera mistök og læra af þeim. Sem betur fer.

"Experience is simply the name we give our mistakes"
Oscar Wilde

Ást M

Wednesday, January 15, 2014