Tuesday, December 20, 2016
Nr.6 Samskipti
Að tjá sig er kúnst, að skilja aðra er ekki síður kúnst og það er með ólíkindum hversu hraplega er hægt að misskilja hvert annað.
Samskipti eru gríðalega mikilvægur hluti af tilveru okkar. Ekki eingöngu til að tjá sig um þarfir, langanir og líðan heldur einnig til að fróa félagslegri þörf sem við öll höfum og einnig til að veita hvort öðru mikilvægar upplýsingar, fræða hvort annað og þar fram eftir götunum.
Samskiptaform eru mismunandi, sem dæmi geta þau farið fram á eftirfarandi máta:
-Samtal þar sem tónbrigði og líkamstjáning eflir skilning viðtakandans.
-Skeyti, þá annað hvort einhverskonar skilaboð eða tölvupóstur þar sem erfitt er að túlka tilfinningar á bakvið það sem skrifað er og mjög auðvelt er að misskilja efnið.
-Svo er einnig hægt að notast við tákn.
það er mjög mismunandi hvernig samskiptum okkar er háttað, allt eftir hver á í hlut. Við tjáum okkur jú ekki eins við maka/börn eða yfirmann eða hvað þá við ókunnuga. Samskipti er að mínu mati mjög áhugavert fyrirbæri! stundum hittir maður fólk sem klárar fyrir þig setningar og virðist skilja þig betur en þú skilur þig sjálfan. Svo eru þessir sem maður hefur á tilfinningunni að séu geimverur, botnar ekki upp né niður í þeim, hvað þá þeir í þér.
Stundum forðast maður samskipti við ákveðið fólk eða bara fólk yfir höfuð og stundum sækir maður í að fá að tjá sig eða hlusta á aðra. Ætli það sé ekki hægt að segja að hvort maður sækir í eða forðast samskipti við fólk í formi "andlit til andlits" fari alfarið eftir andlegri líðan viðkomandi. Ef ég tala fyrir sjálfa mig þá er ég langt frá því að vera sólgin í samskipti þegar ég er í lægð. þá vil ég bara fá að vera í friði í þögninni, inní hausnum á sjálfri mér. Einnig eru vissar persónur sem mér finnst hreint og beint óþægilegt að eiga í samskiptum við og þvi forðast ég það, hvort sem það er er meðvitað eður ei! Ætli þessi undankoma sé ekki hluti af þvi að ég hef strögglað, og geri enn, með að setja fólki mörk þegar kemur að framkomu í minn garð. Ég hef átt/á það til að leyfa fólki að segja hvað sem er við mig og jafnvel ganga yfir mig, og eftir á verð ég svo reið út í sjálfa mig að hafa ekki svarað og kennt fólki betri framkomu í minn garð.
Ég reyni að leggja mig fram við að vanda samskipti mín við aðra, vera kurteis, brosa, vera jákvæð, hrósa og vera hreinskilin. ÉG get því miður ekki sagt að það takist í hvert sinn en ég reyni að vera meðvituð um hvað ég læt út úr mér eða skrifa til annara sem ég þarf að tjá mig við.
Words - so innocent and powerless as they are, as standing in a dictionary, how potent for good and evil they become in the hands of one who knows how to combine them
-Nathaniel Hawthorne
Ást M
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment